FYRIR GREIÐA VEGI

FYRIR SLÓÐA, STÍGA OG FJÖLL

INNAN BORGA OG BÆJA

Á MALAR- OG GRÓFUM VEGUM

FJALLARAFHJÓL

Vegna Covid-19 ástandsins hefur framleiðsla rafmagnshjóla verið mjög takmörkuð vegna hinna ýmsu íhluta sem gera Merida fjallahjólin einstök í gæðum. Hjá Rafhjólasetri Ellingsen höfum við boðið upp á forpantanir og í dag eru örfá hjól óseld hjá okkur en hægt er bæði að staðfesta kaup með 30% innáborgun eða fullri greiðslu og tryggja sér Merida fjallahjól í sumar.

Forpantanir verða afreiddar í júlí og hægt er að gera pöntun hér á netversluninni eða með því að hafa samband við okkur í síma 580 8500 eða á netfangið rafhjolasetur@ellingsen.is

MERIDA eONE-SIXTY

PERFORMANCE

Sönn arfleifð - endursköpun

Árið 2020 var nýju eONE-SIXTY rafhjóli hleypt af stokkunum og náði það að feta fullkomlega í fótspor fyrstu kynslóðar eONE-SIXTY sem var mest fjöðrum prýdda, prófaða og verðlaunaða hjólið í sögu Merida. Þetta hjól sem beðið hefur verið eftir, gekk í gegnum mikið af ýmisum þol- og gæðaprófunum og skoraði hátt í þeim öllum, auk þess vann það til nokkurra verðlauna á iðnaðarsviðinu. Á árinu 2021 verða öll raffjallahjólin búin nýjum EP8 rafmótorum frá Shimano, auk þess að vera með innbyggða 630 Wh rafhlöðu frá sama fyrirtæki. Með þessum nýjungum nást betri afkastatölur, allt jafnvægi hjólsins er þróaðra, ásamt því að innfelld rafhlaða inni í neðri stellpípu hjólsins bíður upp á lægri þyngdarpunkt. Til þess að ná fullkomnum stöðugleika, þyngdardreifingu og takast þannig á við krefjandi aðstæður er hjólið búið 29“ dekki að framan og 27,5“ dekki að aftan.

MERIDA eONE-FORTY

PERFORMANCE

Brekkubrun, eingöngu, tilheyrir fortíðinni

Ef þú ert að leita eftir góðum torfæruþjarki til daglegra, nota hvort sem er innabæjar eða utan, þá er Shimano STePS EP8 rafmótorknúna eONE-FORTY fulldempaða fjallahjólið fyrir þig. Nýtíma ferðafjallahjól sem er innblásið af stóra bróður sínum, eONE-SIXTY, en er með lægri neðsta punkt undir stell og brattari sætispípu og höfuðpípu – þannig aðeins styttra stell sem bíður upp á meiri lipurð og frábæra klifureiginleika. Nákvæmlega það sem þú ert að leita að í fulldempuðu raffjallahjóli fyrir fjölbreyttar aðstæður.

MERIDA eBIG.NINE

SPORT

Þrekhjólreiðar eða þeisireið

Hið þekkta eBIG.NINE á 29“ dekkum býðst núna með spennandi EP8 rafmótoruppfærslu frá Shimano ásamt innbyggðri rafhlöðu í stelli sem hefur verið stækkuð í 630 Wh. Þetta er hjól sem felur í sér fullkomið jafnvægi milli daglegs notagildis og þrekhjólreiða. Til að staðsetja eBIG.NINE út frá hjólaflokki, þá er það mitt á milli eSPRESSO hybrid hjólanna og fulldempuðu fjallahjólannna. eBIG.NINE getur haft aurbretti og jafnvel standara (er einnig fáanlegt í fullbúinni útgáfu) og þannig fullkomlega klárt til daglegs brúks.

MERIDA eBIG.SEVEN

LEISURE

Þrekhjólreiðar eða þeisireið

Öll þau þægindi, afköst og lipurð sem eBIG.NINE hefur fram að færa, eru einnig til staðar í eBIG.SEVEN hjólunum. Það eina sem skilur á milli þessara hjóla er dekkjastærðin, en eBIG.SEVEN stendur á 27,5“ dekkjum og er talan í nafni hjólsins vísun í stærð dekkjanna. Hjólið er fullkomin blanda torfærurhjóls og borgarhjóls og því tilvalið til að hjóla um borg og bý. eBIG.SEVEN er fáanlegt fullbúið eða hrátt t.d. án bretta og standara. Hægt er að velja um tvennskonar Shimano STePS rafmótor.

MERIDA eBIG.TOUR

SPORT

Ferðafjallahjól í sinni bestu mynd

eBIG.TOUR EQ sameinar það besta af sitthvorum vængnum úr Merida línunni. Utanfrá séð er það fjallahjól en er í eðli sínu ferðahjól. Með stelli byggt á eBIG.NINE hjólinu, demparagaffli og breiðari 29“ dekkjum, skilar hjólið þægilegum og þýðari hjólareiðatúr en venjulegt ferðahjól. Á hinn bóginn, þar sem það er fullbúið með brettum, bögglabera og ljósum, hentar það mjög vel fyrir öll þau verkefni og þær kröfur sem venjulega er ætlast til af ferðahjóli eða Hybrid-hjóli. Sterklegu niðurbeygðu topprörin í stellinu auðvelda að geta staðið klofvega yfir hjólinu - og að stíga á og af því.

Hafðu samband

Okkur hjá Rafhjólasetri Ellingsen er mjög annt um að þú finnir rétta rafhjólið fyrir þig. Þér er alltaf velkomið að senda okkur línu á netfangið rafhjolasetur@ellingsen.is, hringja í síma 580 8500 eða koma við í verslunum okkar, tala við sérfræðinga og prófa rafhjólin.

Leita í versluninni

Algeng skilyrði