FYRIR GREIÐA VEGI

FYRIR SLÓÐA, STÍGA OG FJÖLL

INNAN BORGA OG BÆJA

Á MALAR- OG GRÓFUM VEGUM

SPURT & SVARAÐ

Netverslunin býður fría heimsendingu á vörum keyptum á netinu, auk þess sem hægt er að velja að sækja í verslun. Þú velur vöru, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag, greiðir og pöntunin er afgreidd um leið og færi gefst. Í kjölfarið af greiðslu færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og netverslun Rafhjólasetursins. Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða full endurgreiðsla. Það tekur í flestum tilvikum 2-4 daga að fá vöruna í hendurnar eftir að pöntun er móttekin, en þó getur afgreiðsla á rafhjólum tekið allt að 6 daga þar sem þau þurfa samsetningu á verkstæði Rafhjólasetursins. Pantanir eru ekki sendar út um helgar. 

Já við bjóðum upp á reynsluakstur undir eftirliti starfsmanna að því gefnu að prufuaksturshjól sé til staðar. Við áskiljum okkur rétt til að neita viðskipavinum um reynsluakstur.  
Hafið samband við starfsfólk okkar í netfangið rafhjolasetur@ellingsen.is eða í síma 580 8500. 

Möguleiki er á að tryggja sér rafhjól með því að greiða 20% af heildargreiðsluverði inn á hjólið í gegnum netverslun Rafhjólaseturs. Innborgunin er bindandi. 

Já, hægt er að forpanta rafhjól með 20% innborgun en athuga þarf að endanlegt verð getur verið háð gengisbreytingum. Innborgun er bindandi. 

Boðið er upp á að greiða með greiðslukorti í netverslun Ellingsen. 

Hægt er að greiða með greiðslukortum frá Visa og Mastercard, en viðskiptavinir þeirra geta valið greiðsludreifingu hjá sínum banka. Hægt að nýta greiðsluleiðir Netgíró í netversluninni. 

Netverslun Rafhjólasetursins notar örugga greiðslugátt frá Borgun á Íslandi. 

Eins og er er ekki hægt að nýta gjafakort S4S í greiðslukerfi Rafhjólasetursins en viljir þú greiða með gjafakortinu þínu er það lítið mál. Hafðu samband við þjónustuverið okkar í síma 544-2160, eða sendu okkur tölvupóst á rafhjolasetur@ellingsen.is.  

Hægt er að hætta við öll kaup og fá fulla endurgreiðslu svo fremi sem vara hefur ekki verið afgreidd. Undantekning eru sérpantanir með innborgunum þar sem innborgun færst ekki endurgreidd. Til að hætta við kaup þarf að hafa samband við starfsfólk okkar í netfangið rafhjolasetur@ellingsen.is eða í síma 580 8500. 

Já þú hefur 14 daga til þess að skila vörunni og fá hana endurgreidda, en eingöngu ef greitt er með kreditkort og endurgreitt inn á sama kort að fullu ef neðangreind skilyrði eru uppfyllt:

Varan skal vera ónotuð. 

Vara skal vera í söluhæfu ástandi. 

Vara þarf að vera í upprunalegum umbúðum. 

Greiðslukvittun þarf að fylgja með sendingunni. 

14 daga endurgreiðslufrestur hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Endursenda má vöru til Ellingsen að Fiskislóð 1, 101 Reykjavík eða Tryggvabraut 1-3 Akureyri. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta. Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003. 

Leita í versluninni

Algeng skilyrði